
Rannsóknastöðin Rif auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki til rannsókna að upphæð allt að 200.000 kr. innan verkefnisins „Northern Insights: Research Mobility Grants for Melrakkaslétta“.
Við bjóðum rannsakendum með aðsetur á Íslandi að sækja um, sérstaklega þeim sem eru á fyrstu stigum ferils síns. Verkefni geta meðal annars fjallað um líffræðilega fjölbreytni, loftslagsbreytingar, vistfræði, félagsfræði, ferðaþjónustu, þróun byggðar á Melrakkasléttu og listir sem tengjast náttúru og umhverfi.
Seinni úthlutunarumferð
Þetta er seinni úthlutunarumferð styrkjanna og er fyrir verkefni sem fara fram á tímabilinu 1. september til 30. nóvember 2026.
Styrkirnir greiða fyrir:
- ferðakostnað (eldsneyti),
- mat sem keyptur er í Raufarhöfn,
- aðgang að rannsóknaraðstöðu,
- og gistingu í allt að sex daga vettvangsvinnu.
Rannsóknastöðin Rif sér um að bóka og greiða fyrir gistingu.
Þeir sem fá styrk eru beðnir um að halda opið erindi fyrir heimafólk um rannsóknarverkefnið sitt.
Umsókn þarf að innihalda
- Stutta lýsingu á verkefninu (hámark 2 bls.)
- Ferilskrá (CV)
Umsóknarfrestur
26. ágúst 2026
Umsóknareyðublað
Heiti rannsóknarverkefnis:
Nafn umsækjanda:
Tengsl (háskóli, stofnun):
Staða/hlutverk (t.d. meistaranemi, doktorsnemi, rannsakandi, prófessor eða annað):
Netfang:
Símanúmer:
Rannsóknarsvið:
Lýsing á verkefni:
(Hámark 300 orð. Lýsið rannsóknarverkefninu stuttlega, tilgangi þess og mikilvægi fyrir Melrakkasléttu.)
Markmið:
(Takið saman helstu markmið vettvangsvinnu ykkar á svæðinu.)
Aðferðafræði:
(Lýsið hvernig þið hyggist framkvæma rannsóknina, t.d. vettvangsvinnu, viðtöl, gagnaöflun o.s.frv.)
Væntanlegar niðurstöður:
(Hvaða niðurstöður búist þið við og hvernig munu þær nýtast, t.d. til þekkingar, skipulags, verndar eða skapandi miðlunar?)
Miðlun niðurstaðna:
(Hvernig hyggist þið kynna niðurstöðurnar? Fyrir nærsamfélag, hagaðila eða opinberlega?)
Áætlaðar dagsetningar vettvangsvinnu:
(Dagsetningar þurfa að vera á tímabilinu 1. september til 30. nóvember 2026.)
Ferilskrá (viðhengi):
(Hámark 1 bls.)
Verkefnið er styrkt af Brothættar byggðir II – Frumkvæðissjóður.
Fyrir frekari upplýsingar eða til að sækja um, sendið tölvupóst á pedro@rifresearch.is.
